Náttúruminjasafn Íslands.
Frú forseti. Ég held að við gerum okkur öll grein fyrir því að hæstv. menntamálaráðherra er ekki í öfundsverðu hlutverki þegar kemur að því að leita úrlausna varðandi Náttúruminjasafn Íslands en ég tek heils hugar undir það sem kom fram í hennar máli. Við höfum þrjú höfuðsöfn. Við erum búin að skapa ákveðinn ramma og það þarf ekki að endurskoða hann frá grunni. Hins vegar er alveg ljóst að eitt stærsta verkefni sem bíður þingsins er að endurskipuleggja í rauninni alla safnamálaumgjörðina, fjárframlög til safna sem hafa styrkst víða um land en það er ekki þar með sagt að það eigi að vera á kostnað Náttúruminjasafnsins fyrir sunnan.
Hér er höfuðstaður Íslendinga. Ég tek undir með hv. þingmanni, við eigum að byggja upp höfuðstöðvarnar hér en miðla safnkostinum sem víðast um landið. Það sjáum við nú gerast m.a. í gegnum Þjóðminjasafnið og aðrar menningarstofnanir og við eigum að halda því áfram. Ég hvet hæstv. menntamálaráðherra með þetta erfiða hlutskipti að reyna að stuðla að því að á næstu árum verði alla vega húsakostur sem getur (Forseti hringir.) stuðlað að því að börnin okkar fái aðgang að náttúruminjunum sem eru til staðar og reyna að setja þetta á einn stað, (Forseti hringir.) helst líka með aukinni samvinnu við Náttúrufræðistofnun.