138. löggjafarþing — 29. fundur,  19. nóv. 2009.

2. umræða um Icesave og kvöldfundur.

[11:57]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Frú forseti. Ég tek undir orð annarra þingmanna um að það verði ákveðið frekar fyrr en síðar í dag með hvaða hætti þingfundur fer fram og hvenær honum ljúki í kvöld. Störf þingsins hafa verið mikið í umræðu í vikunni, með hvaða hætti þau eru, hvernig þau gera fjölskyldum þingmanna mikið ógagn og skaða þær jafnvel þannig að ég tel mjög mikilvægt að þessum málum verði komið í skikkanlegt horf. Það væri ekki úr vegi að byrja einfaldlega á því í dag.