138. löggjafarþing — 29. fundur,  19. nóv. 2009.

2. umræða um Icesave og kvöldfundur.

[12:00]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Forseti ítrekar það sem áður hefur komið fram í máli forseta. Gerðar verða ráðstafanir til að reyna að koma á fundi með þingflokksformönnum í hádegishléi ef það gæti orðið til að liðka til svo hægt sé að hefja fyrir fram boðaða dagskrá, þannig að það sé alveg skýrt.