138. löggjafarþing — 30. fundur,  24. nóv. 2009.

viðvera ráðherra.

[14:53]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Forseti vill upplýsa áður en lengra er haldið undir þessum dagskrárlið og þeim óskum þingmanna um að gera hlé á fundi og kalla til gesti á fundi nefndanna að forseti mun koma þessum óskum og ábendingum til formanna viðkomandi nefnda og það er þá í samráði og samvinnu við þá sem við höldum þessum fundi áfram.