138. löggjafarþing — 30. fundur,  24. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[22:39]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir heiðarlegt svar. Mörg okkar voru á þjóðfundi fyrir rúmri viku þar sem var kallað á heiðarleika og mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála mér um að það sé ekki heiðarlegt af okkur að taka á okkur skuldbindingar sem við vitum að við ráðum ekki við.

Eins langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að samþykkt Icesave sé inngöngumiði okkar inn í Evrópusambandið.