138. löggjafarþing — 34. fundur,  28. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[18:19]
Horfa

Forseti (Steinunn Valdís Óskarsdóttir):

Forseti vill geta þess vegna þeirrar umræðu sem hér fer fram undir liðnum um fundarstjórn forseta að samkvæmt samþykktri starfsáætlun Alþingis gefinni út 1. október var alla tíð gert ráð fyrir því að fundir Alþingis færu fram þennan umrædda föstudag. (BÁ: En í dag?)

Forseti vill enn fremur geta þess vegna umræðu um fundarstjórn forseta að gert er ráð fyrir að gert verði kvöldmatarhlé milli kl. 19 og 19.30.