138. löggjafarþing — 35. fundur,  30. nóv. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[17:51]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Við ræðum á hinu háa Alþingi það mál sem er hér á dagskrá, 4. dagskrárliður, og enn eru mjög margir á mælendaskrá. Svo það sé alveg ljóst endurtekur forseti að það verður fundað hér á Alþingi fram eftir kvöldi. (Gripið fram í: Hversu lengi?) Það er ekki komin nein tímasetning á það hversu lengi fundurinn mun standa. Það verður fundað hér fram eftir kvöldi og það er sú tímasetning sem við höfum á þessari stundu. (Gripið fram í.)