138. löggjafarþing — 40. fundur,  7. des. 2009.

réttindi fatlaðra til ferðaþjónustu.

[12:22]
Horfa

félags- og tryggingamálaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa ágætu fyrirspurn. Efni hennar er hins vegar það sértækt að ég hef svörin því miður ekki á takteinum en þykir sjálfsagt að leggja þau fram í skriflegu svari ef hún óskar þess eða koma því á framfæri við hana beint.