138. löggjafarþing — 46. fundur,  16. des. 2009.

hlutafélög og einkahlutafélög.

71. mál
[13:16]
Horfa

Magnús Orri Schram (Sf):

Virðulegi forseti. Konur skipa nú 15% stjórna íslenskra fyrirtækja en í þeim fyrirtækjum sem stofnuð voru árið 2009 eru konur aðeins 11% stjórnarmeðlima. Þetta er óheillaþróun sem við verðum að bregðast við. Löggjafinn er með þessu að rækta hlutverk sitt og beita áhrifum sínum en gefur atvinnulífinu nægt ráðrúm til þess að taka til í sínum ranni eða til ársins 2013.