138. löggjafarþing — 51. fundur,  18. des. 2009.

endurskoðun á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn.

17. mál
[12:10]
Horfa

Frsm. sjútv.- og landbn. (Ásmundur Einar Daðason) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir framhaldsnefndaráliti frá hv. landbúnaðar- og sjávarútvegsnefnd um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn og innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins.

Nefndin ákvað að taka málið til frekari umfjöllunar eftir að því hafði verið vísað til 3. umræðu. Nefndin telur rétt að árétta heimild ráðherra til að setja nánari ákvæði um framsal á eftirliti með reglugerð eins og gerð var tillaga um í nefndaráliti við 2. umræðu. Ráðherra setur reglugerð í samráði við Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlitssvæði sveitarfélaga um framsal eftirlits með kjötvinnslu á grundvelli 14. gr. frumvarpsins, og eftir atvikum einnig með framleiðslu mjólkur og mjólkurvara á bændabýlum og mótar þannig reglur um það í hvaða tilvikum heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga geta sinnt eftirliti með framangreindum afurðum. Í ljósi umfjöllunar um framsal eftirlits vill nefndin árétta að meginmarkmið með slíku framsali á að vera hagkvæmni þess og skilvirkni þannig að hagkvæmasti kosturinn hverju sinni sé valinn. Þess vegna er nauðsynlegt að meta hvort framsal er fjárhagslega hagkvæmt fyrir hlutaðeigandi aðila, eftirlitsþola, ríki og sveitarfélög. Þá leggur nefndin til tæknilega lagfæringu á b-lið 2. gr. frumvarpsins.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

B-liður 2. gr. orðist svo: 2. mgr. orðast svo:

Lyf, samanber lyfjalög, eru undanþegin ákvæðum þessara laga. Þó gilda lög þessi um matvæli, þar með talin fæðubótarefni, sem innihalda lyf. Tóbak, samanber lög um tóbaksvarnir, og vímuefni, önnur en áfengi, samanber lög um ávana- og fíkniefni, eru undanþegin ákvæðum þessara laga. Það sama gildir um plöntur, fyrir uppskeru, samanber lög um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum, fóður, samanber lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og lifandi dýr nema þau séu alin til markaðssetningar til manneldis

Undir nefndarálitið skrifa hv. þm. Ólína Þorvarðardóttir, Helgi Hjörvar, Ásmundur Einar Daðason, Arndís Soffía Sigurðardóttir, Einar K. Guðfinnsson, Björn Valur Gíslason, Jón Gunnarsson og Sigurður Ingi Jóhannsson, með fyrirvara.