138. löggjafarþing — 54. fundur,  19. des. 2009.

fundarstjórn.

[17:50]
Horfa

Forseti (Árni Þór Sigurðsson):

Forseti vill árétta að það er grundvallaratriði að þingmenn fylgist með því sem fram fer í þingsalnum. Forseti leitaði sérstaklega eftir því hvort fleiri vildu gera grein fyrir atkvæði sínu og sagði síðan: Svo er ekki. Þetta er regla sem forsetar fara eftir. (Gripið fram í: Það er ekki algilt.) Þetta er algild regla sem forsetar fara eftir.