138. löggjafarþing — 55. fundur,  19. des. 2009.

framhaldsskólar.

325. mál
[18:25]
Horfa

Magnús Orri Schram (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég sá mig knúinn til að kveðja mér hljóðs undir þessum lið og nefna að hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson mætti ekki á fund viðskiptanefndar í morgun þar sem umrætt frumvarp til laga var á dagskránni.