tekjuöflun ríkisins.
Frú forseti. Ég held að við hljótum að geta verið sammála um það að nauðsynlegt er að við vinnum saman að því að leita lausna, eins og hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir kom hér inn á. Í sjálfu sér er það rétt og verður að halda því til haga, eins og hv. formaður efnahags- og skattanefndar hefur nú þegar gert, að ekki er búið að slá út af borðinu hugmyndir Sjálfstæðisflokksins um skattlagningu inngreiðslna í lífeyrissjóð. (Gripið fram í.) Hins vegar, eins og ég hef ítrekað margoft hér í kvöld, er þar verið að stela skatttekjum frá framtíðinni, það verður ekkert horft fram hjá þeirri staðreynd. Það væri afar óábyrgt að ætla að leysa vanda nútímans með því að stela frá framtíðinni. Ég held að það séu ekki stjórnarhættir sem við viljum viðhafa hér. En í ljósi þessarar (Gripið fram í.) algjörlega sérstöku aðstöðu sem við erum í núna væri hægt að kíkja á þetta og það mun líklega verða gert.
Annað sem hv. þingmaður kom inn á. Það voru mín orð að þær skattahækkanir sem nú á að fara út í séu hóflegar og ég stend við þau, miðað við þær aðstæður sem við erum í núna eru þetta hóflegar skattahækkanir. Miðað við t.d. hvernig skattprósenta okkar er í samanburði (Gripið fram í.) við nágrannalöndin. Ég bið hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um að koma hér og tala í sínum ræðutíma en ekki í mínum.
Eins og ég segi, aðstaðan er þessi núna. Við þurfum að brúa þetta stóra gat í fjárlögunum. Hvað varðar dylgjur hv. þingmanns hér um það að við Helgi Hjörvar hv. þingmaður séum ósammála í þessum efnum, það mátti skilja það sem svo að hann hafi haft einhver orð uppi um annað á göngunum í dag, þá hef ég borið þetta undir hann og það mun ekki vera svo. Hann er sammála mér um að ekki sé tilefni til (Forseti hringir.) leikrænna tilburða. Talandi um að dýpka ekki kreppuna, þá vil ég beina því til hv. þm. Unnar Brár að þessi (Forseti hringir.) ríkisstjórn er að passa að kreppan dýpki ekki, með því að loka fjárlagagatinu (Forseti hringir.) á stuttum tíma svo við lendum ekki í vaxtagjöldum (Forseti hringir.) hér fram eftir öllu, sem mundi dýpka kreppuna enn frekar.