Frú forseti. Við greiðum þessari breytingartillögu atkvæði okkar, ekki vegna þess að við séum endilega svo mikið fylgjandi sjálfstæðismönnum í einu og öllu heldur teljum við einfaldlega [Kliður í þingsal.] seilst of djúpt í vasa almennings með skattahækkunum ríkisstjórnarinnar og hér er leið til að hlífa heimilum í landinu við frekari skattahækkunum, a.m.k. í eitt ár, og það veitir ekki af. Þess vegna teljum við þetta vænlegri leið en leið ríkisstjórnarinnar en við förum samt ekki miklu lengra í stuðningi okkar við Sjálfstæðisflokkinn. [Hlátur í þingsal.]