138. löggjafarþing — 65. fundur,  30. des. 2009.

þingfrestun.

[23:31]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 138. löggjafarþings, frá 30. desember 2009 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 26. janúar 2010.

Gjört í Reykjavík, 29. desember 2009.

Ólafur Ragnar Grímsson.

____________________

Jóhanna Sigurðardóttir.

Forsetabréf Íslands um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis 138. löggjafarþings er frestað.

Leyfi ég mér að þakka hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins fyrir krefjandi störf í þágu lands og þjóðar á þeim erfiðu tímum sem ríkt hafa í íslensku samfélagi um leið og ég óska þeim svo og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári.