138. löggjafarþing — 70. fundur,  29. jan. 2010.

framhaldsfundir Alþingis.

[12:02]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

„Handhafar valds forseta Íslands hafa gefið út svohljóðandi bréf:

Handhafar valds forseta Íslands, samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, gjöra kunnugt:

Vér höfum ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda föstudaginn 29. janúar 2010 kl. 12.

Gjört í Reykjavík, 29. janúar 2010.

 

Jóhanna Sigurðardóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir,

Ingibjörg Benediktsdóttir.

__________________

Jóhanna Sigurðardóttir.

Bréf handhafa valds forseta Íslands um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Ég býð hæstv. forseta og hv. alþingismenn velkomna til þingstarfa og lýsi þeirri einlægu von minni að störf Alþingis verði þjóðinni til farsældar og þinginu til sóma.