Fyrri ræða

138. löggjafarþing — 70. fundur,  29. jan. 2010.

fjármálafyrirtæki.

343. mál
[13:00]
Hlusta - Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirgripsmikla ræðu og þetta frumvarp. Það nær reyndar ekki þeim markmiðum sem ég hefði talið þurfa.

Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort komin sé ný reglugerð hjá Evrópusambandinu, mér er reyndar kunnugt um að svo sé, og hvort hún hafi verið yfirtekin hjá Evrópska efnahagssvæðinu og hvort að samkvæmt henni sé ríkisábyrgð á innstæðutryggingum sem þá væntanlega hefur ekki verið áður. Leiðir það til þess að allar fjármálastofnanir verði í reynd ríkisfyrirtæki?

Síðan langar mig að spyrja hann í sambandi við bankaleyndina hvort skoðuð hafi verið áhættan af því þegar einn aðili skuldar yfir 5% af þjóðarframleiðslu og hvort það verði upplýst. Mér finnst það mikið vegna áhættu.

Var skoðuð þingsályktunartillaga sem ég hef flutt um gagnsæ hlutafélög? Mér finnst þetta frumvarp ekki ná fram því markmiði sem þar er sett fram einmitt um að byggja upp traust þannig að hlutabréfamarkaðurinn geti farið í gang aftur. Hann gerir það ekki að fenginni reynslu.

Næsta ræða