Virðulegi forseti. Því er til að svara að í vinnu að frumvarpinu var hugmyndin um sérstök 5% mörk á stórum áhættuskuldbindingum og tilkynningar ef farið yrði yfir þau mörk ekki í umræðunni. Hins vegar er almennt tekið mjög fast á málum sem upp koma vegna þess sem kallað er stórar áhættur eða stórar áhættuskuldbindingar, og gegnsæi eignasafna bankanna ætti að vera mun meira, m.a. með því að fyrirtækjum eða fyrirtækjasamsteypum er gert að upplýsa um endanlegt eignarhald og greiða úr ýmsum þeim flækjum sem menn hafa skýlt sér bak við til þessa. Það er allt saman í anda þeirrar hugmyndar sem hv. þingmaður hefur reifað um gagnsæ hlutafélög þótt ég verði að viðurkenna að það er ekki að öllu farið eftir þeim tillögum sem endurspeglast í þeim hugmyndum sem hann hefur reifað (Forseti hringir.) um það félagaform.