Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagningu þessa frumvarps og tel það mikilvægt skref í að byggja upp traust, trúnað og gagnsæi í fjármálakerfinu.
Mig langar að varpa spurningu til hæstv. ráðherra. Hún varðar 13. gr. frumvarpsins, 22. gr. laganna, og fjallar um sölu eigna bankanna. Mér sýnist hún nær eingöngu fjalla um þá tímafresti sem gilda þegar fjármálastofnanir hafa fengið í hendurnar fyrirtæki sem stunda aðra starfsemi en fjármálastarfsemi, þ.e. að eingöngu sé fjallað um tímafrestina sem gilda en ekki tekið á því hvernig standa skuli að sölu þeirra eigna, með hvaða hætti eigi að selja þær eignir sem bankarnir hafa tekið til sín. Mig langar til að spyrja hvort þetta hafi ekki komið til skoðunar í ráðuneytinu og hvort þetta sé ekki nokkuð fyrir viðskiptanefndina til að fjalla um með vísan til þess rauða þráðar sem er í frumvarpinu og lýtur að trausti, trúnaði og gagnsæi.