fyrirkomulag umræðna um störf þingsins.
Frú forseti. Þetta var harla einkennilegt hjá hæstv. fjármálaráðherra. Þannig er að þessi liður sem við vorum að ræða hér undir er kallaður störf þingsins. Tvisvar í viku er sérstakur óundirbúinn fyrirspurnatími þar sem við getum beint máli okkar til ráðherranna alveg sérstaklega. Í þessum tíma, sem er tvisvar sinnum í viku, geta þingmenn átt orðastað hver við annan eða komið upp með yfirlýsingar eða haldið ræður eftir því sem hugur þeirra lystir. En í því tilviki sem hér um ræðir hafði ég haft samband við hv. formann fjárlaganefndar, gert honum grein fyrir spurningu minni. Hann hafði fallist á að svara henni, enda beindi ég henni til hans, þ.e. hvort hann væri sáttur við það sem formaður fjárlaganefndar að það hafi komið í ljós að hæstv. fjármálaráðherra hafi haft yfir að ráða upplýsingum sem hann taldi mikilvægar en hafði haldið leyndum fyrir þinginu, ég spurði sérstaklega formann fjárlaganefndar hvort hann væri sáttur við það. Það kom reyndar ekki svar. Eins spurði ég hv. þm. Guðbjart Hannesson sérstaklega um hvort honum hafi verið kunnugt um þetta. Ég vildi fá að vita þetta vegna þess að aftur og aftur var sagt í þinginu að allar upplýsingar lægju fyrir. (Forseti hringir.) Það er með engum hætti verið að ráðast á menn persónulega. Það skiptir bara máli fyrir okkur þingmenn að við (Forseti hringir.) vitum það og getum treyst því að þegar framkvæmdarvaldið talar í þinginu (Forseti hringir.) sé það að flytja fram réttar upplýsingar.