Forseti. Ég get svarað spurningu hv. þingmanns játandi um það hvort mér finnist það ósanngjarnt að farið sé fram á það að málið verði tekið af dagskrá þingsins, ég svara því játandi, mér finnst það ósanngjarnt. Mér finnst það mjög ósanngjarnt að krefjast þess að mál sem eru tekin fyrir á Alþingi með fullkomlega eðlilegum hætti, lögð fram, rædd, fara í nefnd og koma aftur til umræðu á Alþingi og fara væntanlega til nefndar í annað sinn á milli 2. og 3. umr., verði tekin af dagskrá.
Mér finnst hins vegar sanngjarnt að við ræðum þessi mál og færum rök fyrir máli okkar og reynum að komast að niðurstöðu. Ég taldi mig hafa gert það þokkalega áðan, og í langflestum tilfellum, í langflestum atriðum þessa frumvarps er tiltölulega góð sátt. Það er ósætti um línuívilnunina þar sem eingöngu Landssamband smábátaútgerða styðja það en aðrir hafa lagst gegn því, það er mesta ósættið í því. Um flest önnur atriði er þokkalega góð sátt hjá hagsmunaaðilum í greininni en það er síðan ósætti um skötuselsákvæðið eins og ég nefndi áðan. Það er ekki eins og það sé bullandi ágreiningur innan greinarinnar um allt þetta mál. Þess vegna finnst mér mjög ósanngjarnt að það sé verið að krefjast þess að þetta frumvarp sé tekið af dagskrá þingsins og það ekki rætt frekar. Mér finnst það hvorki lýðræðisleg né sanngjörn krafa. Ég svara því þess vegna játandi að mér finnst þetta ósanngjörn krafa.
Varðandi gullkarfann og djúpkarfann og skiptingu á honum, get ég tekið að stórum hluta undir það sem þingmaðurinn nefndi áðan, að þetta er vandmeðfarið, sérstaklega ef á að greina þetta niður í tvær tegundir, sem þær auðvitað eru, þ.e. djúpkarfi og gullkarfi, en úthluta sem einni. Þá koma að sjálfsögðu upp ákveðin (Forseti hringir.) atriði sem þarf að leiðrétta því að sum skip hafa ekki (Forseti hringir.) reynslu í veiðum á djúpkarfa á meðan aðrir hafa ekki reynslu í veiðum á gullkarfa.