138. löggjafarþing — 75. fundur,  16. feb. 2010.

grein í Vox EU.

[13:38]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil ítreka að ég hef ekki séð umrædda grein sem hv. þingmaður vísar í og það er auðvitað forsenda þess að ég geti haft á henni skoðun aðra en þá sem ég lýsti áðan, þ.e. ef ummæli hv. þingmanns eru rétt er það óheppileg lýsing sem kemur fram í greininni. En ég þarf auðvitað að skoða og fara yfir grein Anne Sibert til að geta staðreynt sjálf hvort hér sé um rétta lýsingu að ræða.