138. löggjafarþing — 92. fundur,  16. mars 2010.

tilkynning um dagskrá.

[13:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um klukkan 2 í dag, að loknum umræðum um störf þingsins, fer fram umræða utan dagskrár um þjónustu- og öryggisstig löggæslu á Íslandi. Málshefjandi er hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir. Dómsmálaráðherra Ragna Árnadóttir verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund. Atkvæðagreiðslur verða að loknum umræðum utan dagskrár.