138. löggjafarþing — 109. fundur,  20. apr. 2010.

húsaleigulög o.fl.

559. mál
[17:14]
Horfa

félags- og tryggingamálaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum, lögum um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús, lögum um fjöleignarhús, lögum um húsnæðismál og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum.

Fjölmargar úrskurðar- og kærunefndir eru starfandi innan stjórnsýslunnar, þar á meðal 10 nefndir á málefnasviðum sem falla undir félags- og tryggingamálaráðuneytið. Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er í ríkisfjármálum var í ráðuneytinu ákveðið að kanna hvort unnt væri að hagræða á þessu sviði án þess þó að það skerti það réttaröryggi sem felst í skipan slíkrar nefndar fyrir almenning. Frumvarp þetta er m.a. afrakstur þeirrar vinnu og felur í sér sameiningu nefnda er starfa á skyldum málefnasviðum sem leiðir til þess að úrskurðar- og kærunefndum á málefnasviðum sem falla undir félags- og tryggingamálaráðuneytið fækkar úr 10 nefndum í sjö. Í frumvarpinu er þannig lagt til að þrjár nefndir verði sameinaðar í eina nefnd, kærunefnd húsamála.

Nefndirnar sem hér er um að ræða eru kærunefnd fjöleignarhúsamála, sbr. lög nr. 26/1994, um fjöleignarhús, með síðari breytingum, kærunefnd húsaleigumála, sbr. húsaleigulög nr. 36/1994, með síðari breytingum, og úrskurðarnefnd frístundahúsamála, sbr. lög nr. 75/2008, um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús. Er m.a. litið til þess að nefndir þessar fjalla allar um erindi þar sem upp hafa komið um ágreiningsmál milli einstaklinga í tengslum við húseignir án aðkomu stjórnvalda og þykir því eðlilegt að slíkum málum verði skotið til sömu nefndarinnar til úrlausnar. Lagt er til að félags- og tryggingamálaráðherra skipi þrjá fulltrúa í hina nýju nefnd, kærunefnd húsamála, til þriggja ára í senn og skulu tveir þeirra vera lögfræðingar og einn verkfræðingur. Gert er ráð fyrir að Húseigendafélagið tilnefni einn fulltrúa og skal hann vera lögfræðingur en hinir tveir verði skipaðir án tilnefningar. Skal annar þeirra vera verkfræðingur en hinn uppfylla skilyrði um embættisgengi héraðsdómara og skal sá vera formaður. Þá er lagt til að hinni nýju kærunefnd húsamála verði heimilt að kalla til ráðgjafar og aðstoðar sérfróða aðila telji hún þörf á.

Enn fremur er í frumvarpi þessu lagt til að kærunefnd húsnæðismála, sbr. lög nr. 44/1998, um húsnæðismál, með síðari breytingum, og úrskurðarnefnd félagsþjónustu sveitarfélaga, sbr. lög nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, sameinist í úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála. Þykir hlutverk þessara tveggja nefnda af svipuðum toga þar sem þær taka til meðferðar erindi einstaklinga sem eru ósáttir við tilteknar ákvarðanir hins opinbera, annars vegar af hálfu sveitarfélaga og hins vegar af hálfu Íbúðalánasjóðs. Lagt er til að félags- og tryggingamálaráðherra skipi þrjá fulltrúa í hina nýju nefnd, úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála, til þriggja ára í senn og skulu þeir allir vera lögfræðingar. Gert er ráð fyrir að Samband íslenska sveitarfélaga tilnefni einn fulltrúa og ráðherra skipi tvo án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður. Jafnframt er lagt til að hinni nýju úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála verði heimilt að kalla til ráðgjafar og aðstoðar sérfróða aðila telji hún þörf á.

Með frumvarpi þessu eru hvorki lagðar til heimildir málsaðila til málskots né á málsmeðferð á grundvelli fyrrnefndra sérlaga. Jafnframt er gert ráð fyrir að hlutaðeigandi sérlög gildi áfram um ágreiningsefni sem lagt er fyrir hvora nefndina um sig og taka nefndirnar því ákvarðanir á grundvelli þeirra laga sem við eiga hverju sinni. Það fer því eftir viðeigandi sérlögum hvort nefndirnar kveða upp úrskurði eða eru álitsgefandi í niðurstöðum sínum að því er varðar ágreiningsefni sem fyrir þær eru lögð. Í því skyni að gæta jafnræðis og í ljósi þeirrar almennu venju innan stjórnsýslunnar að málskot til úrskurðar- og kærunefnda eru málsaðilum að kostnaðarlausu er í frumvarpi þessu lagt til að fellt verði brott ákvæði í lögum nr. 75/2008, um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús, sem kveður á um 15.000 kr. gjald til ríkissjóðs úr hendi þess sem vísar ágreiningi til hinnar nýju kærunefndar húsnæðismála.

Virðulegi forseti. Líkt og fram kom í upphafi er frumvarp þetta lagt fram til hagræðingar í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er í ríkisfjármálum án þess þó að skerða það réttaröryggi sem felst í skipan nefnda af þessum toga fyrir almenning. Í kostnaðarumsögn fjármálaráðuneytisins kemur fram að verði frumvarpið lögfest munu útgjöld ríkisins lækka um 2–4 millj. kr. á ári.

Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til hv. félags- og tryggingamálanefndar.