138. löggjafarþing — 111. fundur,  26. apr. 2010.

skeldýrarækt.

522. mál
[19:47]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Jón Bjarnason) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um skeldýrarækt sem er 522. mál þingsins á þskj. 911.

Frumvarp þetta er samið í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu að tilhlutan samráðshóps um kræklingarækt sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði 26. nóvember 2008 á grundvelli tillagna í skýrslu nefndar á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stöðu og möguleika kræklingaræktar á Íslandi, sem birt var 2. júní 2008. Þar var gerð tillaga um stofnun samráðshóps um uppbyggingu kræklingaræktar sem í sætu fulltrúar kræklingaræktenda og opinberra stofnana. Hlutverk samráðshópsins var að samþætta starf ríkisstofnana og koma með tillögur til ráðherra um fyrirhuguð ræktunarsvæði sem færu í heilnæmiskönnun og mat á tíðni eitraðra svifþörunga.

Engin lög eru til um þessa atvinnugrein en talið hefur verið að um hana gildi ákvæði laga um fiskeldi. Í framkvæmd hefur hins vegar komið í ljós að ákvæði þeirra laga eiga ekki að öllu leyti við um skeldýrarækt, t.d. kræklingarækt. Gera þarf a.m.k. nokkrar breytingar á lögunum til þess að þau geti gilt um skeldýrarækt eða kræklingarækt og bæta við þau sérstökum ákvæðum sem víkja nokkuð frá öðrum ákvæðum laganna.

Eftirlit með starfsemi á sviði skeldýraræktar, einkum kræklingaræktar, er aðallega eftirlit með heilnæmi og hollustuháttum, þ.e. matvælaeftirlit sem fer eftir lögum og stjórnvaldsreglum um það efni, og er með nokkuð öðrum hætti en samkvæmt lögum um fiskeldi. Er því gert ráð fyrir að önnur stofnun annist framkvæmd laganna, þ.e. Matvælastofnun, en Fiskistofa annast framkvæmd og eftirlit með starfsemi á sviði fiskeldis.

Við gerð frumvarpsins hefur verið rætt um hvort setja eigi ný lög um skeldýrarækt eða gera breytingar á lögum um fiskeldi til þess að þau geti einnig gilt um þá atvinnugrein. Með vísan til framangreindra sjónarmiða var talið rétt að setja sérstök lög um atvinnugreinina.

Í frumvarpi þessu er farin sú leið að setja sérstök lög um skeldýrarækt sem munu þá einnig gilda um kræklingarækt. Ég vek athygli á að engin slík lög eru í íslenskri löggjöf og tel ég því að þetta séu fyrstu íslensku lögin um þetta efni.

Eftirlit með starfsemi á sviði skeldýraræktar, einkum kræklingarækt, er eins og áður segir aðallega eftirlit með heilnæmi og hollustuháttum, þ.e. matvælaeftirlit sem fer eftir lögum og stjórnvaldsreglum sem settar eru á grundvelli EES-gerða um það efni, sbr. m.a. lög nr. 93/1995, um matvæli, og sbr. og lög nr. 143/2009, um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn og innleiðingar á reglugerð nr. 178/2002 frá 28. janúar 2002 auk afleiddra gerða. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að Matvælastofnun annist hér á landi eftirlit með starfseminni með svipuðum hætti og gildir um eftirlit með annarri matvælaframleiðslu.

Við gerð frumvarpsins hefur verið lögð til grundvallar sú efnisskipan að frumvarpið er í sjö köflum með eftirfarandi efni:

Í I. kafla er fjallað um markmið laganna, gildissvið og skilgreiningar á ýmsum hugtökum sem koma fram í frumvarpinu og stjórnvaldsreglum sem áformað er að setja með heimild í lögum sem sett kunna að verða á grundvelli frumvarpsins.

Í II. kafla er fjallað um hvernig stjórnsýsla samkvæmt frumvarpinu skuli vera, en gert er ráð fyrir að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fari með yfirstjórn mála samkvæmt lögunum en framkvæmd stjórnsýslunnar verði að öðru leyti í höndum Matvælastofnunar sem hefur eftirlit með því að ákvæðum laganna sé framfylgt. Þá er áfram gert ráð fyrir að Fiskistofa fari með eftirlit með veiðum skeldýra til áframhaldandi ræktunar, vigtun og skráningu sjávarafla í samræmi við lög og stjórnvaldsreglur sem um það gilda á hverjum tíma.

Einnig er í kaflanum sérstakt ákvæði um svæðaskiptingu starfsemi til skeldýraræktar hér á landi sem gert er ráð fyrir að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sé heimilt að framkvæma og einnig ákvæði um að ráðherra sé heimilt að takmarka eða banna skeldýrarækt eða ákveðnar aðferðir til slíkrar starfsemi í einstökum fjörðum, flóum eða á svæðum sem teljast sérlega viðkvæm gagnvart þeirri starfsemi sem fer fram samkvæmt lögunum.

Í III. kafla er fjallað um leyfisveitingar o.fl. en þar er gert ráð fyrir að Matvælastofnun geti fyrst veitt tilraunaleyfi til starfsemi til þess að unnt verði að kanna hvort náttúrulegar aðstæður á fyrirhuguðu tilraunasvæði eða fyrirhugaðar tegundir, stofnar eða starfsaðferðir gefi tilefni til hættu á neikvæðum vistfræði- eða erfðafræðiáhrifum sem leitt getur af leyfisskyldri starfsemi.

Áður en gefin eru út tilraunaleyfi skal leyfishafi eða umsækjandi láta framkvæma heilnæmiskönnun sem skal skipulögð og framkvæmd af Matvælastofnun. Meginreglan er sú að leyfishafi greiðir kostnað af slíkri heilnæmiskönnun en ráðherra getur þó ákveðið að hann skuli greiddur úr ríkissjóði ef fjárheimildir fást til þess í fjárlögum.

Þá er gert ráð fyrir að unnt sé að sækja um ræktunarleyfi sem veitt verða til sjö ára í senn. Hægt verður að sækja um ræktunarleyfi þótt tilraunaleyfi hafi ekki verið veitt. Í ákvæðinu er fjallað um ýmis atriði við gerð umsókna og leyfisveitingaferlið að öðru leyti. Loks er þar ákvæði um að Matvælastofnun geti afturkallað tilraunaleyfi eða ræktunarleyfi ef ákveðin skilyrði eru fyrir hendi.

Í IV. kafla eru ákvæði um starfsemi er varðar skeldýraræktina, þ.e. mannvirki, búnað, merkingar, eftirlit og skýrslugjöf, lok starfsemi og framleiðslu og dreifingu skeldýra sem veidd eða ræktuð eru samkvæmt lögunum.

Í V. kafla eru ákvæði um gjaldskrá fyrir starfsemi sem fer fram samkvæmt lögunum en gert er ráð fyrir að hún verði eins og unnt er samræmd gjaldskrá Matvælastofnunar skv. 25. og 26. gr. matvælalaga nr. 93/1995, með síðari breytingum, sbr. lög nr. 143/2009.

Í VI. kafla sem ber heitið Ýmis ákvæði kemur fram að framsal, leiga og veðsetning á tilraunaleyfi og ræktunarleyfi til skeldýraræktar samkvæmt lögunum er óheimil.

Í VII. kafla kemur fram heimild ráðherra til að setja reglugerðir um ýmis atriði varðandi framkvæmd laganna. Einnig er þar viðurlagaákvæði við brotum á lögunum svo og ákvæði um að lögin taki gildi 1. júlí 2010.

Virðulegi forseti. Skeldýrarækt er ný atvinnugrein sem hefur átt misjöfnu gengi að fagna á þeim tíma sem hún hefur starfað en bundnar eru vonir við að þessi atvinnugrein geti eflt atvinnulíf og byggð í landinu og þannig skilað þjóðarbúinu umtalsverðum tekjum svo sem raun hefur orðið á með öðrum þjóðum. Með gildistöku laga þessara er ætlunin því sú að stuðla eftir föngum að möguleikum til skeldýraræktar, m.a. kræklingaræktar, og setja þeirri atvinnugrein jafnframt skýrar reglur og umgjörð.

Að lokum vek ég aftur athygli á að hér er um að ræða fyrstu heildarlögin á Íslandi um skeldýrarækt. Á fylgiskjali með frumvarpi þessu er að finna kostnaðarumsögn fjármálaráðuneytisins um frumvarpið. Ég vil að öðru leyti vísa til greinargerðar þeirrar er fylgir frumvarpinu en þar er ítarlega fjallað um og gerð grein fyrir efni þess.

Virðulegi forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umr. og hv. sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar.