Fyrri ræða

138. löggjafarþing — 113. fundur,  27. apr. 2010.

stefnumótandi byggðaáætlun 2010--2013.

521. mál
[20:52]
Hlusta - Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ætli þetta skilningsleysi stafi ekki bara af því að það er langt liðið á kvöld og þingmaðurinn orðin þreytt. Í mínum huga er þetta ekki alveg svona flókið en hins vegar held ég að þessi umræða og þeir punktar sem komu fram í máli hv. þingmanns og í andsvörum m.a., séu fyllilega umhugsunarverðir. Eigum við ekki bara að beina því til hv. allsherjarnefndar og hæstv. iðnaðarráðherra að taka tillit til þessara athugasemda? Við getum þá kannski beitt okkur í sameiningu, ég og hv. þingmaður, um að koma þessum hugðarefnum okkar betur á framfæri inn í þar til bærar áætlanir.

Næsta ræða