138. löggjafarþing — 115. fundur,  29. apr. 2010.

samgönguáætlun fyrir árin 2009-2012.

582. mál
[13:47]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka andsvarið. Mér kemur í hug að það eru líka möguleikar á því að setja um það lög að ekki sé hægt að nýta sér þessar persónulegu upplýsingar. Auðvitað er hægt að skoða þetta út frá ýmsum hliðum með hvaða hætti væri hægt að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar séu misnotaðar. Ég er ekki búinn að gera upp hug minn eins og ég sagði áður en mun samt skoða þetta með opnum huga.