138. löggjafarþing — 117. fundur,  30. apr. 2010.

úrvinnslugjald.

515. mál
[16:40]
Horfa

umhverfisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald. Lög þessi hafa tekið nokkrum breytingum frá því að þau voru sett árið 2002, en gert var ráð fyrir því í upphafi að upphæð gjalda samkvæmt lögunum mundi breytast reglulega.

Þær breytingar sem frumvarpið mælir fyrir um eru af tvennum toga. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar til hækkunar á fjárhæð úrvinnslugjalds á olíumálningu, blýsýrurafgeymum, pappa- og pappírsumbúðum, plastumbúðum og heyrúlluplasti, ísócýanötum, leysiefnum og halógeneruðum efnasamböndum. Hækkun þessara gjalda er lögð til til að minnka sjóðshalla sem átt hefur sér stað í framangreindum flokkum. Þá eru einnig lagðar til breytingar á V. kafla laganna sem fjallar um lífræn leysiefni þannig að bætt verði við nýjum tollnúmerum leysiefna.

Tekjur Úrvinnslusjóðs af úrvinnslugjaldi ráðast af innflutningi og innlendri framleiðslu af vörum sem falla undir lögin og upphæð úrvinnslugjalds í hverjum vöruflokki. Vegna mikils samdráttar í verslun og viðskiptum er erfitt að áætla tekjur Úrvinnslusjóðs til langs tíma. Unnið er út frá þeim forsendum að álagt magn árið 2010 verði það sama og árið 2009.

Kostnaður af rekstri Úrvinnslusjóðs, annar en skrifstofukostnaður, ræðst af magni úrgangs sem safnað er og ráðstafað af þjónustuaðilum. Greitt er fyrir flutning og ráðstöfun. Í áætlun Úrvinnslusjóðs er magn úrgangs áætlað út frá meðaltali undanfarinna fjögurra til fimm ára. Meiri óvissa er í þessari spá en áður vegna mikilla sveiflna í innflutningi og framleiðslu vegna hinna sérstöku aðstæðna sem ríkja nú í íslensku þjóðfélagi. Við mat á ráðstöfuðu magni er auk þess stuðst við þróun skilahlutfalls síðustu ára. Stærsti kostnaðarliðurinn er greiðsla til þjónustuaðila, og greiðsla skilagjalds í tilfelli ökutækja, fyrir ráðstöfun, þ.e. endurnýtingu, endurvinnslu og förgun. Almennt er miðað við að þessi kostnaður, þ.e. magntengd greiðsla til þjónustuaðila, hækki um 5% milli áranna 2009 og 2010, að undanskilinni smurolíu.

Í öllum vöruflokkum nema smurolíu og ökutækjum er hækkun á þessum greiðslum ákveðin hverju sinni af stjórn sjóðsins. Samningur er við olíufélögin um söfnun smurolíuúrgangs og þar eru greiðslur vísitölubundnar. Upphæð skilagjalds á ökutæki er bundin í lögunum.

Tillögur um breytingar á úrvinnslugjaldi miða við langtímamarkmið um að eigið fé í hverjum vöruflokki taki mið af ársveltu í viðkomandi flokki. Eigið fé er ætlað á móti framtíðarskuldbindingum, sem koma til vegna þess að kostnaður af endurvinnslu fellur oft ekki á sjóðinn fyrr en nokkrum árum eftir álagningu úrvinnslugjalds.

Í 1. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á úrvinnslugjaldi á pappa-, pappírs- og plastumbúðir. Innflutningur og innlend framleiðsla dróst saman á árinu 2009 og eru allar líkur á því að sama verði uppi á teningnum á þessu ári. Söfnun pappaumbúða til endurvinnslu virðist á sama tíma hlutfallslega vera að aukast og því ber að fagna. Skil eru um 61% en voru 45% árið 2007. Endurvinnsluhlutfall pappa- og pappírsumbúða árið 2008 var um 50%. Áætlun Úrvinnslusjóðs gerir ráð fyrir að þau endurvinnslumarkmið vegna þessara umbúða náist fyrir árslok 2011.

Í lok árs 2008 féll verð á endurvinnslumörkuðum erlendis verulega. Til að halda söfnun gangandi hækkaði Úrvinnslusjóður greiðslur til þjónustuaðila tímabundið úr 12 kr./kg í 22 kr./kg. Fylgst er náið með þróun endurvinnslumarkaða sem hafa heldur verið að braggast. Vegna þessa og lækkunar gengis íslensku krónunnar er svigrúm til að lækka greiðslu til þjónustuaðila og er hún núna 17 kr./kg. Þó að ekki hefði komið til þessarar tímabundnu hækkunar á greiðslum til þjónustuaðila var fyrirséð að hækka þyrfti úrvinnslugjald m.a. vegna hækkandi skilahlutfalls.

Lagt er til að úrvinnslugjald á pappa og pappírsumbúðir hækki úr 7 kr./kg í 12 kr./kg.

Í ársbyrjun 2008 var heyrúlluplast og plastumbúðir sameinaðar í einn vöruflokk með sama gjaldi. Við þetta var gjald á heyrúlluplasti lækkað úr 25 kr./kg í 3 kr./kg. Á þeim tíma var ljóst að fljótlega þyrfti að hækka gjald á plast þar sem með þessu var gengið hratt á sameinaðan sjóð þessara flokka. Því er lögð til hækkun úrvinnslugjalds úr 3 kr./kg í 5 kr./kg á plastumbúðir, þar með talið heyrúlluplast. Í 2. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á viðauka I um hækkun á úrvinnslugjaldi á heyrúlluplast, samanber breytingar sem 1. gr. frumvarpsins mælir um.

Í 3. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á viðauka V við lögin sem fjallar um lífræn leysiefni. Annars vegar er gerð tillaga um hækkun úrvinnslugjalds á leysiefni og hins vegar er gerð tillaga um að bæta við nýjum tollnúmerum leysiefna. Innflutningur hefur verið sveiflukenndur á liðnum árum og heldur farið minnkandi. Skilahlutfall hefur verið hátt síðan 2006 vegna breyttrar notkunar á hluta af efnunum. Komið hefur í ljós að stór skilaaðili er með leysiefni sem ekki falla undir kerfið. Tekið hefur verið á því máli í samvinnu við viðkomandi. Sjóðsstaða leysiefna er erfið en úrvinnslugjald á leysiefni hefur ekki hækkað síðan 2003. Í greininni er lögð til hækkun úrvinnslugjalds úr 3 kr./kg í 7 kr./kg. Jafnframt er lagt til að fleiri leysiefni beri úrvinnslugjald og að úrvinnslugjald að upphæð 120 kr./kg verði sett á ný tollnúmer leysiefna til að mæta þörfum Úrvinnslusjóðs til að greiða fyrir meðhöndlun á þeim. Þessi efni eru þess eðlis að þau skila sér að fullu til baka í meðhöndlun.

Í 4. gr. er lögð til breyting á viðauka VI sem fjallar um halógeneruð efni. Vöruflokkurinn hefur verið rekinn með afgangi undanfarin ár utan ársins 2007 og hægt og bítandi er verið að rétta af neikvæða sjóðsstöðu sem þegar var orðin árið 2003. Stórum uppsöfnuðum skammti af efnum var ráðstafað á þessu ári. Reksturinn verður því neikvæður á þessu ári. Lögð er til hækkun úrvinnslugjalds á halógeneruð efni úr 130 kr./kg í 160 kr./kg.

Í 5. gr. er lögð til breyting á úrvinnslugjald á ísócýanöt sem falla undir viðauka VII. Um er að ræða lítinn vöruflokk og því þarf lítið út af að bregða til að reksturinn verði neikvæður. Sjóðurinn varð neikvæður 2003 og hefur verið það síðan. Í frumvarpinu er gerð tillaga um hækkun úrvinnslugjalds á ísócýanöt úr 1,50 kr./kg í 2 kr./kg.

Í 6. gr. er lögð til breyting á viðauka VIII sem fæli í sér hækkun á úrvinnslugjaldi á olíumálningu. Undanfarin ár hefur, í samstarfi við þjónustuaðila, verið leitað leiða til að ná niður kostnaði við meðhöndlun og förgun á málningarúrgangi. Meðalkostnaður hefur nánast lækkað stöðugt frá 2003 þegar hann var um 144 kr./kg en er nú um 136 kr./kg.

Innheimta úrvinnslugjalds á olíumálningu var skoðuð í samstarfi við tollyfirvöld og leiddi skoðunin í ljós að nauðsynlegt væri að hækka gjaldið. Lögð er til hækkun úrvinnslugjalds á málningu úr 25 kr./kg í 30 kr./kg.

Í 7. gr. er lögð til breyting á álagningu á blýsýrurafgeyma sem falla undir viðauka XI. Álagt magn rafgeyma er verulega minna í ár en á síðasta ári. Ekki hefur dregið úr söfnun rafgeymaúrgangs að sama skapi, þ.e. skilahlutfallið hefur hækkað verulega á milli ára. Óljóst er hver þróunin verður á næstu árum þar sem innflutningar bíla hefur dregist verulega saman og í stefnir að svo verði áfram sé miðað við meðaltal síðustu sjö ára. Því er lögð til hækkun á gjaldi úr 19 kr./kg í 25 kr./kg, til að mæta auknum mismun á milli útgjalda sjóðsins og minnkandi tekna.

Hæstv. forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. umhverfisnefndar að lokinni 1. umr.