138. löggjafarþing — 118. fundur,  6. maí 2010.

tilkynning um mannabreytingu í nefnd.

[10:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur ákveðið í samræmi við 16. gr. þingskapa að Sigríður Ingibjörg Ingadóttir taki sæti Þórunnar Sveinbjarnardóttur í umhverfisnefnd. Þessi breyting skoðast samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.