138. löggjafarþing — 118. fundur,  6. maí 2010.

tilkynning um dagskrá.

[10:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um kl. 11 í dag, að loknum dagskrárliðnum Óundirbúinn fyrirspurnatími, fer fram umræða utan dagskrár um skerðingu lífeyrisréttinda og stöðu opinberu lífeyrissjóðanna. Málshefjandi er hv. þm. Bjarni Benediktsson. Fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.