138. löggjafarþing — 132. fundur,  7. júní 2010.

lengd þingfundar.

[15:45]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (REÁ: Já.) Hv. þm. Ragnheiður E. Árnadóttir tekur til máls um tillöguna.