138. löggjafarþing — 134. fundur,  9. júní 2010.

olíugjald og kílómetragjald.

531. mál
[21:47]
Horfa

Frsm. efh.- og skattn. (Anna Margrét Guðjónsdóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti efnahags- og skattanefndar um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald, með síðari breytingum.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ögmund Hrafn Magnússon frá fjármálaráðuneyti, Ingvar Rögnvaldsson og Bjarna Amby Lárusson frá ríkisskattstjóra, Stefán Erlendsson frá Vegagerðinni, Ólaf Jónsson frá Skeljungi og Samúel Guðmundsson frá Olíuverslun Íslands. Þá hafa nefndinni borist umsagnir frá nokkrum aðilum.

Megintilgangur frumvarpsins er að auðvelda eftirlit með þeim sem heimild hafa til notkunar litaðrar olíu og hækka sektir þegar um misnotkun er að ræða. Þá er lagt til að tiltekið orðalag 6. mgr. 13. gr. laganna verði fært til samræmis við 2. mgr. greinarinnar.

Í athugasemdum við 1. gr. frumvarpsins kemur fram að verði frumvarpið að lögum verði kaup á litaðri olíu í sjálfsafgreiðslu aðeins heimil með viðskiptakorti eða dælulykli útgefnum af söluaðila eldsneytisins en ekki með reiðufé eða debet- eða kreditkortum. Skattyfirvöld muni fyrir vikið eiga hægara með að fylgjast með viðskiptum með litaða olíu ef grunur rís um heimildarlausa notkun.

Við meðferð málsins hafa olíufélögin mótmælt 1. gr. frumvarpsins þar sem hún kalli á flóknar breytingar á afgreiðslukerfum. Verði greinin að lögum leggja þau áherslu á rúman aðlögunarfrest. Einnig hafa komið fram áhyggjur af því að sú leið sem þar er lögð til geti haft óæskileg áhrif á samkeppni og persónuvernd.

Ríkisskattstjóri áréttaði á fundum nefndarinnar að nauðsyn bæri til að draga úr aðgengi að litaðri olíu til að sporna gegn misnotkun sem athuganir embættisins bentu til að væri fyrir hendi. Upphafsgrein frumvarpsins væri vel til þess fallin að ná því markmiði og að sjónarmið um persónuvernd stæðu því ekki í vegi fyrir að embættið aflaði upplýsinga sem varða umrædd viðskipti frá söluaðilum eldsneytisins.

Nefndin tekur undir sjónarmið ríkisskattstjóra. Í ljósi athugasemda olíufélaganna felst nefndin þó á að lengja gildistökufrest frumvarpsins að frátalinni 2. gr. þess.

Við meðferð málsins fór Vegagerðin þess á leit við nefndina að lagðar yrðu til breytingar á 18. og 19. gr. laga um olíugjald og kílómetragjald er varða eftirlit og refsingar. Nefndin tekur ekki afstöðu til þess að svo komnu máli.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Við 4. gr. í stað dagsetningarinnar „1. júlí 2010“ komi: 1. október 2010.

Pétur H. Blöndal gerir fyrirvara við álitið.

Ögmundur Jónasson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Þeir sem skrifa undir nefndarálitið eru Helgi Hjörvar, Tryggvi Þór Herbertsson, Lilja Mósesdóttir, Birkir Jón Jónsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Þór Saari og sú sem hér stendur, Anna Margrét Guðjónsdóttir.