138. löggjafarþing — 135. fundur,  10. júní 2010.

bólusetning gegn HPV-smiti og leghálskrabbameini.

498. mál
[13:43]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Mér er heiður að því að geta tekið þátt í að samþykkja það mál sem nú gengur til atkvæða, mál sem hv. fyrrverandi þm. Steinunn Valdís Óskarsdóttir flutti — hún hætti með litlum fyrirvara þingstörfum fyrir sakir, ef sakir eru, sem aðrir eiga meiri sem hér sitja enn. Ég hygg að margir sakni Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur af Alþingi Íslendinga og að þetta mál sýni m.a. hvers vegna.