138. löggjafarþing — 137. fundur, 11. júní 2010.
ummæli þingmanns um ráðherra.
Frú forseti. Ég kveinka mér ekkert undan því að taka þátt í málefnalegri umræðu og vitaskuld á hún sér stað á vettvangi þingsins, úr þessum stól í þessum sal og fyrir þingnefndum og með ýmsum öðrum hætti. Ég ætla hins vegar ekki að láta draga mig út í umræðu um mikilvæg efnahagsmál í athugasemdakerfi snjáldurskjóðu.