138. löggjafarþing — 144. fundur,  16. júní 2010.

varnarmálalög.

581. mál
[17:11]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það er alveg skýrt að Ísland mun standa við allar þær alþjóðlegu skuldbindingar sem það hefur tekið að sér í varnar- og öryggismálum. Það stendur. Ég segi já.