þingfrestun.
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 138. löggjafarþings, frá 24. júní 2010 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 2. september.
Gjört í Reykjavík, 23. júní 2010.
Ólafur Ragnar Grímsson.
__________________
Jóhanna Sigurðardóttir.
Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“
Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég yfir því að fundum Alþingis, 138. löggjafarþings, er frestað.
Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum allra heilla.