138. löggjafarþing — 149. fundur,  2. sept. 2010.

varamaður tekur þingsæti.

[13:41]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Eins og forseti hefur þegar tilkynnt á vef þingsins tók Ólafur Þór Gunnarsson sæti á Alþingi 17. ágúst sl. í stað Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, 3. þm. Suðvest., sem fór í veikindaleyfi.

Þann 24. ágúst hóf Guðfríður Lilja töku fæðingarorlofs og situr ekki á þingi næstu mánuði. Ólafur Þór Gunnarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.