138. löggjafarþing — 162. fundur,  17. sept. 2010.

málshöfðun gegn ráðherrum.

706. mál
[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Samkvæmt 2. mgr. 55. gr. þingskapa er forseta heimilt að rýmka ræðutíma um þingmál ef mál er umfangsmikið og mikilvægt. Að höfðu samráði við fulltrúa þingflokka hefur forseti útbúið tillögu um hvernig umræðu skuli háttað. Hann hefur einnig tekið tillit til athugasemda frá einstökum þingmönnum.

Tilhögun umræðunnar verður þannig: Flutningsmaður og fyrsti ræðumaður hvers þingflokks hefur allt að 45 mínútur í fyrra sinn og 20 mínútur í seinna sinn. Formenn stjórnmálaflokkanna hafa allt að 30 mínútum í fyrra sinn og 20 mínútur í seinna sinn þegar þeir tala. Aðrir þingmenn, þar með taldir ráðherrar og aðrir úr þingmannanefndinni, hafa 20 mínútur í fyrra sinn og 10 mínútur í seinna sinn.