138. löggjafarþing — 165. fundur,  22. sept. 2010.

málshöfðun gegn ráðherrum.

706. mál
[10:43]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Frú forseti. Ég hef ekki enn heyrt nein trúverðug rök fyrir því að þetta eigi að fara í allsherjarnefnd. Mér finnst allt í lagi að umsögn allsherjarnefndar sé fengin um málið en að málið fari inn í þingmannanefndina finnst mér eðlilegasti farvegurinn.