138. löggjafarþing — 167. fundur,  27. sept. 2010.

varamaður tekur þingsæti.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá Jóni Gunnarssyni um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni þar sem hann er staddur erlendis. Jafnframt hafa borist tilkynningar frá 1. og 2. varamanni flokksins í kjördæminu, Óla Birni Kárasyni og Rósu Guðbjartsdóttur, um að þau geti ekki tekið sæti að þessu sinni.

Í dag tekur sæti á Alþingi varamaður hans, Víðir Smári Petersen háskólanemi. Kjörbréf Víðis Smára Petersens hefur þegar verið rannsakað og samþykkt. Hann hefur ekki tekið sæti á Alþingi áður og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni samkvæmt 2. mgr. þingskapa.

 

[Víðir Smári Petersen, 12. þm. Suðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]