138. löggjafarþing — 169. fundur,  28. sept. 2010.

málshöfðun gegn ráðherrum.

706. mál
[16:56]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Meiri hluti Alþingis hefur ákveðið að kæra ekki fyrrverandi utanríkisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra. Við þær aðstæður er út í hött að mínu viti að kæra fyrrverandi viðskiptaráðherra. Ég greiði ekki atkvæði í þessari atkvæðagreiðslu.