139. löggjafarþing — 1. fundur, 1. okt. 2010.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Árna Þór Sigurðssyni, um að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, 3. þm. Suðvest., sé í fæðingarorlofi. Í dag tekur sæti á Alþingi í hennar stað Ólafur Þór Gunnarsson læknir.
Ólafur Þór Gunnarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.