139. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2010.

rannsókn kjörbréfs.

[16:04]
Horfa

Frsm. kjörbn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Kjörbréfanefnd kom saman og fór yfir kjörbréf Jórunnar Einarsdóttur sem er 2. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurkjördæmi, sem landskjörstjórn gaf út í gær, 30. september.

Kjörbréfanefnd leggur einróma til að kjörbréf Jórunnar Einarsdóttur verði samþykkt.