139. löggjafarþing — 3. fundur,  4. okt. 2010.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[19:51]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Tekið er fyrir eina dagskrármálið, stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna í öllum umferðum er þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur og Hreyfingin.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra, í annarri umferð og Valgerður Bjarnadóttir, 6. þm. Reykv. n., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 2. þm. Reykv. s., í annarri umferð og Ragnheiður Elín Árnadóttir, 2. þm. Suðurk., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri Jórunn Einarsdóttir, 4. þm. Suðurk., og í þriðju umferð Ólafur Þór Gunnarsson, 3. þm. Suðvest.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, í annarri Höskuldur Þórhallsson, 6. þm. Norðaust., og í þriðju umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, 3. þm. Suðurk.

Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Þór Saari, 9. þm. Suðvest., í annarri Baldvin Jónsson, 9. þm. Reykv. s., og í þriðju umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurk.