139. löggjafarþing — 5. fundur,  6. okt. 2010.

kosning 3. varaforseta.

[14:41]
Horfa

Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Eins og tilkynnt var í lok fundar í gær hefur borist bréf frá Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, 4. þm. Reykv. s. og 3. varaforseta Alþingis, um að hún segi af sér sem 3. varaforseti Alþingis.

Samkvæmt þessu er á dagskrá þessa fundar kosning 3. varaforseta.

Mér hefur borist ein tilnefning, um 3. þm. Norðaust., Kristján L. Möller. Þar sem ekki eru fleiri tilnefndir en kjósa skal lýsi ég Kristján L. Möller réttkjörinn sem 3. varaforseta Alþingis.

Ég óska honum til hamingju með kosninguna og jafnframt allra heilla í starfi.