139. löggjafarþing — 8. fundur, 12. okt. 2010.
tilkynning um dagskrá.
Um klukkan 14.30 í dag fer fram umræða utan dagskrár um stöðuna í makrílviðræðunum. Málshefjandi er hv. þm. Einar K. Guðfinnsson. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.