139. löggjafarþing — 14. fundur,  18. okt. 2010.

tilkynning um dagskrá.

[15:02]
Horfa

Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Klukkan 15.30 í dag fer fram umræða utan dagskrár um háskólamál. Málshefjandi er hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og hæstv. menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.