139. löggjafarþing — 16. fundur,  20. okt. 2010.

mannvirki.

78. mál
[17:29]
Horfa

umhverfisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Varðandi vangaveltur og spurningu þingmannsins um stjórn á vettvangi er það þannig samkvæmt mínum upplýsingum að haft hefur verið samráð við dómsmálaráðuneytið um samningu þessa frumvarps og þá líka að því er varðar þetta mál sérstaklega. Ég vænti þess að nefndin skoði þetta og kanni hvort þarna sé einhver árekstur milli laga og tryggja þá að svo verði ekki.