139. löggjafarþing — 26. fundur,  16. nóv. 2010.

umfjöllun fjárlaganefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar.

[14:02]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að með bréfi, dags. 10. nóvember 2010, hefur forseti óskað eftir því við fjárlaganefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar „RES Orkuskóli. Rekstrarstaða – framtíðarsýn.“ Það er í samræmi við reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar sem forsætisnefnd samþykkti 12. febrúar 2008.