139. löggjafarþing — 27. fundur,  16. nóv. 2010.

umgengni um nytjastofna sjávar.

203. mál
[16:54]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Jón Bjarnason) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi á þskj. 220, mál nr. 203. Þar er um að ræða breytingar á lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Frumvarp með sama heiti var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en var ekki afgreitt.

Breytingar þessar snúa að því að veita Fiskistofu heimild til að beita dagsektum til að knýja fram skil á svokölluðum vigtar- og ráðstöfunarskýrslum. Frumvarpið er unnið á grundvelli tillagna Fiskistofu sem hefur vakið athygli ráðuneytisins á mikilvægi þess að unnt sé að knýja á um skil á skýrslum þessum.

Fiskistofa safnar og vinnur upplýsingar úr vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem eru skýrslur sem kaupendur afla, fiskmarkaðir og útgerðir vinnsluskipa skila nú til Fiskistofu. Upplýsingar þessar eru nýttar í margvíslegum tilgangi svo sem við ákvörðun á viðmiðunarverði hjá úrskurðarnefnd sjómanna, í birtingu ársfjórðungslegra hagtalna hjá Hagstofu Íslands, í samanburði við skráningar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu til að kanna nákvæmni og réttmæti skráningar afla til aflamarks fiskiskipa og við bakreikningseftirlit Fiskistofu þegar grunur er um að aðili eigi viðskipti með afla sem ekki hefur verið vigtaður og skráður til aflamarks í samræmi við lög og reglur, við ákvörðun gjalda vegna ólögmæts sjávarafla, auk þess sem upplýsingarnar eru notaðar við svörun fyrirspurna varðandi afla, ráðstöfun hans og verðmæti.

Hér er um mikilvæga upplýsingaöflun að ræða en til að upplýsingar þessar og úrvinnsla komi að fullu gagni við úrlausn fyrrgeindra verkefna er afar mikilvægt að skýrslunum sé skilað innan tiltekins tíma. Hér er lagt til að Fiskistofa fái heimild til að knýja á um skil umræddra skýrslna með beitingu dagsekta en slíka heimild er ekki að finna í lögunum í dag.

Virðulegi forseti. Ég tel mikilvægt að mál þetta fái framgang og legg því til að því verði, að lokinni þessari umræðu, vísað til hv. sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og til 2. umr.